Hvað ætli ég hafi skrifað marga reykleysisstatusa í gegnum árin? Skyldi baráttunni vera "lokið"? Mikið væri það nú gáfað af mér svona einu sinni ;)
Veinó
Veinólína
bloggar úr heimabyggð
laugardagur, 4. febrúar 2012
miðvikudagur, 25. janúar 2012
Vúpp vúpp!!!
Nú er ekkert annað eftir en að snýta þessari ógeðslegu flensu út í hafsauga (einn fullur haus af .... eftir) og svo er þetta búið! Út með stelpunum á laugardagskvöldið :)) Loksins!!
sunnudagur, 22. janúar 2012
komin heim :)
Komin heim eftir virkilega skemmtilega og notarlega helgi hjá Diddu. Við Hekla höfðum það voðalega gott vorum bara latar og afslappaðar :)
Nú þarf ég að fara að skipuleggja vikuna, mikill lærdómur framundan. Vá..... vona að það hafi ekki verið mistök að bæta einu fagi við í skólanum. Þetta er bara allt svo skemmtilegt og mig langar helst ekki að sleppa neinu!
Annars er ég bara ágæt, verkjalyfin eru að virka á hálsinn og hóstann. Verð hamingjusömust í heimi þegar þetta er yfirstaðið ;)
Knús, Veinó
laugardagur, 21. janúar 2012
Nýr dagur
Jájá, það er svona gott að taka sér frí frá fb. Hef marg sinnis ætlað í tölvuna í gærkvöldi og í morgun en svo fattaði ég alltaf að ég hefði ekkert að gera í tölvuna. Gott! Glöð!
En þetta er fíkn, það er á hreinu. Ég finn að þetta verður pínu erfitt, sérstaklega verður þetta erfitt þegar maður fer að missa af hinu og þessu vegna þess að það er bara á fb. En það venst.
Í dag er ég að passa Heklu mína, Diddan kemur heim á morgun frá Reykjavík þar sem hún var við útför Viðars. Þetta hafa verið erfiðir tímar fyrir fjölskyldu Önnu Karenar og þau hafa staðið sig vel. En þvílíkt tómarúm sem hún er að upplifa :(
Það verður mikil lærdómsvika í næstu viku. Flensan er á undanhaldi og ég get ekki beðið eftir að vera orðin frísk. Nú er ég í því að snýta blóði. Slímhúðin er öll svo aum, bólgin og blóðmikil. Hálsinn er betri en hóstinn og kvefið er verra. Þetta kemur.
Jæja, nóg í bili.
Upp með gamla bloggið!
kannski ég fari bara að skrifa handskrifuð bréf líka...hehe ;)
Væla veinó
föstudagur, 20. janúar 2012
Pása frá fb
Ahh það er svo gott að taka pásu frá fb. Jafnvel hætta...hver veit? :)
Sjáum til og sjáumst hér!
Veinólína
Subscribe to:
Posts (Atom)
